Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 11. október 2018 22:23
Daníel Rúnarsson
Raggi Sig: Fannst við eiga skilið að vinna Frakka
Icelandair
Byrjunarlið Íslands í kvöld.
Byrjunarlið Íslands í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
„Þetta var flottur leikur hjá okkur, leiðinlegt að hafa misst þetta niður en við getum verið stoltir af þessum leik þó þetta hafi verið mjög svekkjandi," sagði Ragnar Sigurðsson miðvörður Íslands eftir 2-2 jafntefli við Heimsmeistara Frakka í kvöld en Ísland leiddi lengst af 0-2.

Lestu um leikinn: Frakkland 2 -  2 Ísland

Frakkar settu leikinn upp sem partý þar sem átti að fagna Heimsmeistaratitlinum með heimamönnum. Ísland mætti hinsvegar til að skemma partýið.

„Ég hafði ekki hugmynd um það en við erum mjög ánægðir með frammistöðuna.Það er bara svekkjandi að hafa ekki náð að klára Frakkana því mér fannst við eiga það skilið í dag."

Ísland tapaði stórt gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni í síðasta mánuði. Hver var helsti munurinn á að spila þennan leik og þá?

„Hinir tveir leikirnir voru fyrstu tveir leikirnir eftir miklar breytingar, nýir þjálfarar og nýjar áherslur. Hlutir sem við áttum eftir að æfa betur og fara í gegnum sem við náðum að gera betur núna. Ég er viss um að þetta sé á réttri leið."

Ísland mætir svo Sviss heima á mánudaginn í Þjóðadeildinni.

„Við erum búnir að vera sterkir á heimavelli í mörg ár og vitum að við eigum góða möguleika á að vinna Sviss heima."
Athugasemdir
banner
banner
banner