Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 11. október 2018 20:12
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Birkir búinn að koma Íslandi yfir
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland er þessa stundina að etja kappi við heimsmeistara Frakka í æfingalandsleik í Frakklandi.

Strákarnir okkar hafa átt frábæran leik og eru einu marki yfir í hálfleik eftir að Birkir Bjarnason skoraði framhjá Hugo Lloris.

Alfreð Finnbogason bjó markið til fyrir Birki þar sem hann vann boltann úti á hægri kanti, lék á varnarmann Frakka og sendi boltann beint í hlaupaleið Birkis.

Birkir mætti á fleygiferð og lagði boltann snyrtilega niðri í vinstra hornið með viðstöðulausu innanfótarskoti fyrir utan teig.

Hægt er að sjá markið með að smella hér eða hér.

Forysta Íslendinga í leiknum gæti verið meiri og tókst Strákunum okkar að klúðra ótrúlegu færi í fyrri hálfleiknum.

Hugo Lloris átti sinn þátt í að stöðva boltann frá því að fara yfir marklínuna en hægt er að sjá myndband af atvikinu með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner