Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 11. október 2018 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Markalaust hjá Rússum og Svíum
Mynd: Getty Images
Rússland 0 - 0 Svíþjóð

Það var HM stemning er Rússar tóku á móti Svíum í síðasta leik kvöldsins í Þjóðadeildinni.

Bæði lið voru afar varkár í öllum sínum sóknaraðgerðum og rötuðu aðeins þrjú skot á rammann yfir leikinn. Hleypt var af nítján skotum til viðbótar sem fóru ekki á rammann.

Svíar áttu betri fyrri hálfleik og voru óheppnir að skora ekki en Rússar komu grimmari til leiks í síðari hálfleik og stjórnuðu honum frá upphafi til enda, en fundu engar glufur á skipulögðum varnarleik gestanna.

Þetta er fyrsta stig Svía í Þjóðadeildinni eftir tap gegn Tyrkjum í fyrstu umferð. Rússar eru á toppi riðilsins með fjögur stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner