Semenyo og Neves orðaðir við Man Utd - Atletico hefur áhuga á Rashford
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
Kiddi Jóns framlengir - Var í viðræðum við annað félag
Jóladagatalið: Elínborg gaf viðtal í sturtu eftir leik
Fer yfir næstu skref á Laugardalsvelli - „Setjum mikla pressu á þetta“
Jóladagatalið: Hugleysingjar dauðans
Jóladagatalið: Eiður Smári gekk út úr viðtali
Óþægileg óvissa en gerðist svo hratt - „Þarf að byrja á að virða þetta skref"
Jóladagatalið: Dansaði að hætti Boris Lumbana
Jóladagatalið: Fituprósenta og Framsókn
Jóladagatalið: Vidic er fokking leiðinlegur
Viktor Örn: Sjóaðir í að standa upp við mótlæti
Andri Rafn: Ákveðinn léttir og mikil gleði að ná fyrsta sigrinum
banner
   fös 11. október 2019 21:57
Arnar Helgi Magnússon
Birkir Bjarna: Maður heyrði rosalegan smell
Icelandair
Birkir ræðir við Gianluca Rocchi dómara leiksins.
Birkir ræðir við Gianluca Rocchi dómara leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við verðum að vera hreinskilnir að þetta var svolítið klaufalegt," sagði Birkir Bjarnason um 1-0 tapið gegn Frökkum í kvöld en eina markið kom úr vítaspyrnu sem Antoine Griezmann fékk eftir að Ari Freyr Skúlason braut á honum.

„Ég var nálægt þessu víti og þetta var 100% víti. Maður heyrði rosalegan smell þó að hann detti svolítið seint. Ari veit það sjálfur að þetta var smá klaufalegt."

„Við vorum með þá á þessum tímapunkti og vorum nálægt þvi að fara að gera eitthvað. Við verðum að vera ánægðir með þennan leik. Við spiluðum gríðarlega vel gegn einu besta liði í heimi,"

Birkir var valinn maður leiksins en hann átti frábæran dag á miðjunni.

„Mér leið mjög vel. Ég er búinn að bíða svolítið lengi eftir þessum leik og vera að æfa sjálfur. Ég er hrikalega ánægður. Það er gott að geta spilað góðan leik."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner