Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 11. október 2019 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekki í plönum Everton að reka Marco Silva
Mynd: Getty Images
Það er ekki í plönum Everton að reka Marco Silva á þessum tímapunkti, en hæstráðendur félagsins vilja að gengið liðsins batni sem allra fyrst. Sky Sports segir frá.

Everton hefur tapað fjórum leikjum í röð og er í fallsæti eftir átta umferðir í ensku úrvalsdeildinni.

Hluti stuðningsmanna Everton baulaði á hinn portúgalska Silva er liðið tapaði gegn Burnley um síðustu helgi.

Everton tekur á móti West Ham eftir þennan landsleikjaglugga í mikilvægum leik fyrir Marco Silva.

Sjá einnig:
Gylfi í viðtali á heimasíðu Everton: Þetta er mjög erfitt
Athugasemdir
banner
banner
banner