Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   fös 11. október 2019 12:00
Magnús Már Einarsson
Tólfan skoraði níu gegn Frökkum
Icelandair
Mynd: Tólfan
Tólfan, stuðningsmannasveit Íslands, burstaði stuðningsmannasveit Frakka 9-1 í vináttuleik í gær.

Liðin áttust við á Víkingsvelli sem upphitun fyrir landsleik Íslands og Frakklands í kvöld.

Tólfan hafði gífurlega yfirburði frá byrjun og komst í 4-0 áður en Frakkar klóruðu í bakkann fyrir hálfleik.

Yfirburðir Tólfunnar héldu áfram í síðari hálfleik og fimm mörk litu dagsins ljós til viðbótar.

Elías Ingi Árnason dæmdi leikinn í gær.

Sjá einnig:
Upphitun fyrir landsleikinn á Ölveri - Freyr með töflufund
Athugasemdir
banner
banner
banner