Fotbolti.net
11.10.22 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Bakslag hjá Kante sem fór ekki með til Ítalíu

Bakslag hjá Kante sem fór ekki með til Ítalíu
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn N'Golo Kante verður ekki með Chelsea sem heimsækir AC Milan í Meistaradeildinni í kvöld.

Kante varð fyrir bakslagi á æfngu á meiðslum sín aftan í læri og ferðaðist ekki með til Ítalíu.

Franski heimsmeistarinn hefur ekki spilað síðan í 2-2 jafnteflisleik gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni þann 14. ágúst.

Smelltu hér til að sjá leiki dagsins í Meistaradeildinni
„Þetta eru vonbrigði fyrir hann og okkur en við þurfum að bíða og sjá hvernig meiðslin eru," segir Graham Potter, stjóri Chelsea.

Kante kom við sögu í slúðurpakka dagsins en hann hefur verið orðaður við PSG.

Marokkóski vængmaðurinn Hakim Ziyech er veikur og missir einnig af leiknum í kvöld.

Red Bull Salzburg er í efsta sæti E-riðils með fimm stig, en Chelsea og Milan eru í öðru og þriðja sæti með fjögur stig hvort lið. Chelsea vann heimaleik sinn gegn Milan 3-0 í síðustu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.