Fotbolti.net
11.10.22 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Erfiður dagur hjá Salah - Snerti boltann aðeins einu sinni í teig Arsenal

Það gengur lítið hjá Mohamed Salah

Það gengur lítið hjá Mohamed Salah

Canon

Mynd: EPA

Stjörnuleikmaður Liverpool, Mohamed Salah, átti erfiðan dag á skrifstofunni er liðið tapaði fyrir Arsenal á Emirates-leikvanginum á sunnudag.
Arsenal lagði Liverpool að velli, 3-2, í þessum hörkuslag en það fór lítið fyrir Salah í leiknum.

Hann hefur aldrei verið með jafn fáar snertingar í teig andstæðinganna sinna frá því hann kom til Liverpool frá Roma fyrir fimm árum.

Salah hefur ekki fundið neistann á þessu tímabili og er aðeins með tvö deildarmörk til þessa. Hann virðist ekki ná að finna sitt gamla form en dagurinn hans var sérstaklega erfiður gegn Arsenal.

Hann snerti boltann aðeins einu sinni í teignum gegn Arsenal á þeim 69 mínútum sem hann spilaði. Þetta hefur gerst tvisvar áður en þá spilaði hann færri mínútur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.