11.10.22 - 09:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Trent og Matip frá næstu vikurnar

Trent

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Trent

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Joel Matip og Trent Alexander-Arnold munu missa af næstu leikjum Liverpool vegna meiðsla. Varnarmennirnir fóru báðir af velli gegn Arsenal á sunnudag vegna meiðsla.
Matip glímir við meiðsli í kálfa og verður frá næstu 2-3 vikurnar. Trent er meiddur á ökkla og verður frá í tvær vikur.
Matip glímir við meiðsli í kálfa og verður frá næstu 2-3 vikurnar. Trent er meiddur á ökkla og verður frá í tvær vikur.
Ibrahima Konate kom inn á fyrir Matip gegn Arsenal og Joe Gomez leysti Trent af.
Liverpool mætir Rangers á Ibrox annað kvöld og Konate er líklegur til þess að byrja. Konate var að spila sinn fyrsta leik á sunnudag eftir tveggja mánaða meiðsli.
Í gær var greint frá því að Luis Díaz yrði frá í næstu tíu leikjum Liverpool vegna hnémeiðsla.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 5 | +8 | 15 |
| 2 | Arsenal | 6 | +5 | 15 |
| 3 | Brighton | 6 | +13 | 13 |
| 4 | Brentford | 6 | +6 | 10 |
| 5 | Chelsea | 6 | +2 | 10 |
| 6 | Leeds | 6 | +3 | 9 |
| 7 | Liverpool | 5 | +3 | 9 |
| 8 | Everton | 5 | +3 | 9 |
| 9 | Ipswich Town | 6 | -3 | 9 |
| 10 | Hull City | 5 | +2 | 8 |
| 11 | Man Utd | 6 | +1 | 8 |
| 12 | Newcastle | 5 | 0 | 8 |
| 13 | Nott. Forest | 5 | -1 | 5 |
| 14 | Aston Villa | 6 | -5 | 5 |
| 15 | Crystal Palace | 5 | -5 | 4 |
| 16 | Sunderland | 6 | -6 | 4 |
| 17 | Bournemouth | 6 | -6 | 3 |
| 18 | Coventry | 5 | -9 | 3 |
| 19 | Fulham | 6 | -4 | 2 |
| 20 | Tottenham | 6 | -7 | 2 |