Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. nóvember 2018 17:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andri kemur inn í landsliðshópinn fyrir Jóa Berg
Icelandair
Mynd: Heimasíða Helsingborg
KSÍ hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að Jóhann Berg Guðmundsson hafi dregið sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla.

Jóhann Berg fór meiddur af velli hjá Burnley gegn Leicester í gær.

Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaður Helsingborg, hefur verið kallaður inn í hópinn í staðinn.

Andri Rúnar var að klára frábært tímabil með Helsingborg í Svíþjóð. Hann var markahæsti leikmaður sænsku B-deildarinnar, sem Helsingborg vann, og var þess að auki valinn besti leikmaður Helsingborg á tímabilinu.

Andri á tvo A-landsleiki og hefur í þeim skorað eitt mark.

Ísland er að fara að spila við Belgíu á fimmtudaginn í Þjóðadeildinni og gegn Katar í vináttulandsleik nokkrum dögum síðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner