Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. nóvember 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England í dag - Manchester-slagurinn!
United vann í mögnuðum leik á Etihad á síðustu leiktíð.
United vann í mögnuðum leik á Etihad á síðustu leiktíð.
Mynd: Getty Images
Það er frábær fótboltadagur framundan á Englandi.

Í hádeginu fær Liverpool lið Fulham í heimsókn. Liverpool er enn ósigrað í deildinni en gengið upp á síðkastið hefur ekki verið sérstakt. Liverpool hefur aðeins unnið þrjá af síðustu níu leikjum sínum en liðið tapaði gegn Rauðu stjörnunni í Serbíu, í Meistaradeildinni síðastliðinn þriðjudag.

Fulham hefur ollið vonbrigðum það sem af er þessu tímabili og er á botni deildarinnar fyrir leikinn.

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton heimsækja Chelsea klukkan 14:15. Chelsea er eins og Liverpool ósigrað í deildinni.

Arsenal fær Wolves í heimsókn klukkan 16:30 en á sama tíma hefst leikur Manchester City og Manchester United á Etihad-leikvanginum.

City er búið að vera að spila frábærlega í deildinni og er á toppnum með níu sigra og tvö jafntefli fyrir leikinn í dag. Það hefur ekki gengið eins vel hjá United í deildinni en það er mikill meðbyr með Jose Mourinho og hans lærisveinum þessa daganna.

United vann 3-2 á Etihad-vellinum á síðustu leiktíð í mögnuðum leik. Hvað gerist í dag?

Leikir dagsins:
12:00 Liverpool - Fulham (Stöð 2 Sport)
14:15 Chelsea - Everton (Stöð 2 Sport)
16:30 Arsenal - Wolverhampton Wanderers
16:30 Manchester City - Manchester United (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner