Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 11. nóvember 2018 22:36
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: PSG skoraði fjögur gegn Mónakó
Mynd: Getty Images
Mónakó 0 - 4 PSG
0-1 Edinson Cavani ('4)
0-2 Edinson Cavani ('11)
0-3 Edinson Cavani ('53)
0-4 Neymar ('64, víti)

Slæmt gengi Mónakó heldur áfram og er liðið búið að tapa fjórum af sex fyrstu leikjunum sínum undir stjórn Thierry Henry.

Lærisveinar Henry fengu topplið Paris Saint-Germain í heimsókn í kvöld og var Edinson Cavani búinn að skora tvö á fyrstu ellefu mínútum leiksins.

Cavani fullkomnaði þrennuna snemma í síðari hálfleik og gerði Neymar út um leikinn með marki úr vítaspyrnu.

Mónakó er aðeins með sjö stig eftir þrettán umferðir en PSG er með fullt hús stiga og þrettán stiga forystu.
Athugasemdir
banner
banner