Evrópu-Innkastið gerði upp helgina í ensku deildinni og kom svo við í Þýskalandi og á Ítalíu. Daníel Geir og Elvar Geir fóru yfir hlutina eins og þeim er lagið og var farið með Elvar í Ander Herrera leikinn.
Meðal efni þáttarins: Arsenal að hiksta, Tottenham nær úrslitum, Jorginho gefur eftir og átti að fá rautt, Manchester er blá, Koscielny eða Laporte í landsliðið, Tilfinninga-Gonzalo, Dortmund ferskir en Bayern gamlir, magnaður rígur í S-Ameríku, og svo var tekinn létt landsliðsumræða um íslenska landsliðið.
Evrópu-Innkastið er í boði Ölvers en þar verður hægt að finna alls konar landsleiki og fleira á meðan enski fer í frí.
Athugasemdir