Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 11. nóvember 2018 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu sigurmark Cardiff - Kom eftir langt innkast Arons
Mynd: Getty Images
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson átti þátt í sigurmark Cardiff gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Aron er þekktur fyrir löngu innköst sín. Hann tók eitt slíkt undir lok leiksins sem endaði með því að Sol Bamba kom boltanum yfir línuna. Bamba tókst að koma boltanum inn eftir mikinn atgang í teignum.

Eftir innkastið frá Aroni var boltinn skallaður þrisvar áður en Bamba reyndi bakfallsspyrnu sem hafnaði í stönginni. Þaðan hrökk boltinn út og áttu heimamenn skot sem var varið í slá áður en knötturinn barst aftur til Bamba sem þrumaði honum í netið af stuttu færi.

Dramatískt sigurmark sem tryggði Cardiff sinn annan sigur á tímabilinu.

Smelltu hér til að sjá markið.

Cardiff er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með átta stig. Brighton er í 12. sæti með 14 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner