Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 11. desember 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Pickford: Myndi tippa á að Gylfi skori næst
Jordan Pickford skutlar sér.
Jordan Pickford skutlar sér.
Mynd: Getty Images
Jordan Pickford, markvörður Everton, segist ekki reikna með neinu öðru en að Gylfi Þór Sigurðsson skori úr næstu vítaspyrnu sem liðið fær.

Gylfi lét Ben Foster verja frá sér vítaspyrnu í 2-2 jafntefli Everton og Watford í gær. Staðan þá var 2-1 fyrir Watford en Lucas Digne jafnaði síðan úr aukaspyrnu á lokasekúndunum.

Gylfi skoraði úr sex vítaspyrnum í röð með Swansea en á þessu tímabili hefur hann klikkað á tveimur af þremur spyrnum sínum með Everton. Pickford hefur trú á að Gylfi skori úr næstu spyrnu.

„Því miður klikkaði Gylfi á vítaspyrnu en það er hluti af fótboltanum og ég myndi tippa á að hann skori úr næstu spyrnu," sagði Pickford eftir leik.

„Við gefumst aldrei upp og við náðum að koma til baka. Ef þú nærð ekki sigri þá viltu að minnsta kosti ekki tapa."
Athugasemdir
banner