Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 11. desember 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Thierry Henry pirraður - Vill að gengið sé frá
Mynd: Getty Images
Thierry Henry, þjálfari Mónakó, vill að sínir menn séu kurteisir og gangi vel um.

Þetta sýndi sig á fréttamannafundi í gær en þar sátu Henry og Benoît Badiashile fyrir svörum.

Þegar fundinum var lokið gekk Benoit frá borði án þess að setja stólinn undir borðið. Henry var óánægður með þetta og gaf Benoit það sterkt til kynna með svipbrigðum sínum.

Mónakó mætir Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld en liðið er nú þegar úr leik í riðlinum.

Myndband af þessu má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner