Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 12. janúar 2018 12:30
Elvar Geir Magnússon
Hazard: Ég mun gera nýjan samning við Chelsea
Hazard horfir á NBA-leik í London.
Hazard horfir á NBA-leik í London.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, hinn magnaði leikmaður Chelsea, hefur staðfest í samtali við Daly Mirror að hann muni skrifa undir nýjan samning við Chelsea.

Hazard var mættur á NBA-körfuboltaleik Boston Celtics og Philadelphia 76ers (114-102) sem fram fór í London og þar náði blaðamaður Mirror smá spjalli við hann.

Þessi 27 ára belgíski landsliðsmaður hefur verið orðaður við Real Madrid en staðfestir að hann muni bráðlega skrifa undir nýjan samning við Chelsea, en ekki fyrr en liðsfélagi sinn og markvörður Thibaut Courtois skrifar undir nýjan samning.

„Ég mun gera nýjan samning. Fyrst skrifar Thibaut undir, svo ég," sagði Hazard sem er einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Hazard hefur skorað níu mörk og átt átta stoðsendingar á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner