Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. janúar 2018 15:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Klopp um söluna á Coutinho: Það var ekkert annað í stöðunni
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool tjáði sig um söluna á Philippe Coutinho til Barcelona á blaðamannafundi í dag.

Klopp segir að allt hafi verið reynt til að halda honum hjá félaginu en hann hrósaði Coutinho svo fyrir góða frammistöðu á fyrri hluta tímabilsins.

„Það var ekkert annað í stöðunni, við gerðum allt til að reyna sannfæra hann um að vera áfram. Þetta var draumurinn hans og það er satt þegar að ég segi að þetta hafi verið eina liðið sem kom til greina hjá honum," sagði Klopp.

„Ég vissi að þessi staða myndi koma upp aftur núna í félagaskiptaglugganum, og ég vissi að það yrði mjög erfitt að halda honum hérna."

„Hann spilaði frábærlega fyrir okkur fyrri hluta tímabilsins þrátt fyrir hvað var í gangi síðasta sumar," sagði Jurgen Klopp að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner