Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. janúar 2018 18:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mourinho: Sanchez er stórkostlegur leikmaður
Alexis Sanchez gæti verið á leið til Manchester United.
Alexis Sanchez gæti verið á leið til Manchester United.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho var spurður út í áhuga Manchester United á Sílemanninum Alexis Sanchez á blaðamannafundi í dag.

Mourinho vildi ekki tjá sig beint um hvort Sanchez væri á leið til Manchester United en hann talaði um að hann væri stórkostlegur leikmaður.

„Mér finnst ekki rétt að tala um leikmenn sem eru hjá öðrum liðum. Ef einhver myndi tjá sig um leikmann hjá mínu liði þá yrði ég ekkert mjög ánægður."

„Sanchez er leikmaður Arsenal, ég veit það ekki með vissu en Sanchez er líklega að fara spila í treyju Arsenal um helgina."

„Ég get sagt ykkur það að stjórn Manchester United hefur ekki mikinn áhuga á janúar glugganum, við viljum ekki kaupa leikmenn bara til þess að kaupa þá."

„Við trúum því hins vegar að ef það eru einhverjir leikmenn í fótbolta heiminum sem þú hefur tækifæri á að fá þá verður þú að reyna. Það eina sem ég get sagt er að Sanchez er stórkostlegur leikmaður en hann er leikmaður Arsenal og mér finnst að ég ætti ekki að tjá mig meira," sagði Jose Mourinho að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner