Millwall 0 - 2 Blackburn
0-1 Joseph Nuttall ('86)
0-2 Adam Armstrong ('88)
0-1 Joseph Nuttall ('86)
0-2 Adam Armstrong ('88)
Millwall og Blackburn áttust við í lokaleik dagsins í Championship deildinni sem var vægast sagt hundleiðinlegur.
Liðin áttu samanlagt þrjú skot að marki í fyrri hálfleik og hitti ekkert þeirra á markrammann.
Fyrsta skot gestanna sem hitti rammann kom á 86. mínútu þegar Joseph Nuttall skoraði. Tveimur mínútum síðar tvöfaldaði Adam Armstrong forystuna og fóru því bæði markskot Blackburn í netið og skiluðu inn mikilvægum sigri.
Blackburn er um miðja deild, sjö stigum frá umspilsbaráttunni. Millwall hafði unnið þrjá í röð fyrir daginn í dag og er fimm stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir