Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. janúar 2019 17:49
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Mjög þroskuð frammistaða
Mynd: Getty Images
Liverpool heimsótti Brighton og gerði Mohamed Salah eina mark leiksins úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.

Jürgen Klopp er ánægður með sigur á erfiðum útivelli en Liverpool er núna með sjö stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.

„Þetta var mjög erfiður leikur og við erum ánægðir með sigurinn. Það vita allir hversu erfiður þessi útivöllur er, ég er stoltur af sigrinum þó að þetta hafi ekki verið nein ópera. Þetta var mjög fínt lag," sagði Klopp.

„Við erum Liverpool og við reynum að vinna hvern einasta leik, það er ekkert nýtt. Þetta var mjög þroskuð frammistaða hjá okkur, við hefðum getað gert betur en á endanum var þetta þægilegur sigur."

Þetta var sérstaklega mikilvægur sigur fyrir Liverpool því síðustu tveir leikir liðsins höfðu endað með tapi. Framundan eru heimaleikir gegn Crystal Palace og Leicester.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner