Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 12. janúar 2021 07:45
Fótbolti.net
Frídeildin: Ný hraðmót hjá Steve Dagskrá og Pepsi Max fara af stað í kvöld!
Frideildin.is
Frideildin.is
Mynd: Frídeildin
Hin sérstaka leikvika 18 fer af stað í kvöld en einungis sex leikir fara fram í umferðinni. Það er ljóst að margir munu nýta Free Hit kubbinn og verður áhugavert að fylgjast með umferðinni.

Frídeildin ýtir úr vör tveimur spennandi hraðmótum í 18. Leikviku. Það fer af stað nýtt hraðmót hjá Steve Dagskrá og stendur mótið yfir til og með 19. leikviku. Verður spennandi að sjá hvernig það mót fer enda verða báðar umferðir mótsins um margt sérstakar og má telja líklegt að sigurvegarinn verði sá er best nýtir kubbana sína (e. chips). Domino´s kostar mótið og mun sigurvegarinn standa uppi með glæsilegan vinning í formi inneignar.

Þá fer einnig af stað nýtt hraðmót hjá Pepsi Max sem stendur frá 18. leikviku og til og með leikviku 22. Sem fyrr stendur Ölgerðin fyrir glæsilegum vinningum og mun sigurvegari mótsins ekkert skorta í glæsilegum drykkjarföngum og snakki.

SKRÁ SIG HÉR

Athugasemdir
banner
banner