Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. janúar 2021 19:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kian Williams framlengir við Keflavík
Verður áfram í Keflavík.
Verður áfram í Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kian Paul James Williams hefur framlengt samning sinn við Keflavík út tímabilið 2022.

Kian kom til Keflavíkur frá Magna á Grenivík fyrir síðasta tímabil. en hann er uppalinn hjá Leicester City í Englandi.

„Kian spilaði hrikalega vel með Keflavík á liðnu tímabili og var valinn efnilegasti leikmaður tímabilsins. Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir okkur Keflvíkinga að Kian ætli að halda áfram og væntum við mikils af kappanum!" segir í tilkynningu frá Keflavík.

Kian, sem er fæddur 2000, átti mjög flott tímabil með Keflavík og hjálpaði hann liðinu að vinna sér inn sæti í Pepsi Max-deildinni. Kian spilaði 16 leiki með Keflavík í deild og bikar á síðustu leiktíð og skoraði í þeim sex mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner