Fyrsti leikur 32-liða úrslita Evrópudeildarinnar fer fram í kvöld þegar Fenerbahce tekur á móti Zenit frá Pétursborg.
Zenit vann sinn riðil þrátt fyrir að skora aðeins sex mörk í sex leikjum á meðan Fenerbahce endaði í öðru sæti eftir Dinamo Zagreb.
Zenit hefur átt gott tímabil í Rússlandi og er á toppi rússnesku deildarinnar með 34 stig eftir 17 umferðir. Sama er ekki hægt að segja um Fenerbahce sem er í bullandi fjárhagsörðugleikum og fallbaráttu þrátt fyrir að hafa endað í öðru sæti í fyrra.
Þetta er eini leikur kvöldsins en hinir fimmtán munu fara fram á fimmtudaginn. Seinni umferðin fer svo öll fram fimmtudaginn 21. febrúar.
Leikur dagsins:
17:55 Fenerbahce - Zenit
Athugasemdir