Stjarnan tekur á móti Grindavík í fyrsta leik riðils 1 í A-deild Lengjubikarsins.
Liðin mætast í Kórnum í kvöld og er mikil eftirvænting fyrir leikinn eftir að Grindavík kynnti tvo nýja leikmenn í gær.
Stjarnan gerði gott mót í Pepsi-deildinni síðasta sumar og endaði í 3. sæti, með 40 stig. Grindavík byrjaði mjög vel en gekk skelfilega á seinni hluta tímabils og fékk aðeins fimm stig úr síðustu níu leikjunum. Grindvíkingar enduðu í 10. sæti með 25 stig.
Stjarnan hefur byrjað undirbúningstímabilið þokkalega og endaði í 2. sæti í Fótbolta.net mótinu. Grindavík endaði í 6. sæti.
Lengjubikar karla A-deild - Riðill 1
20:15 Stjarnan-Grindavík (Kórinn)
Athugasemdir