Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 12. febrúar 2019 23:07
Arnar Helgi Magnússon
Lengjubikarinn: Stjarnan sigraði Grindavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 2 - 1 Grindavík
1-0 Guðjón Baldvinsson ('32 )
1-1 Sigurjón Rúnarsson (34' )
2-1 Hilmar Árni Halldórsson (57' )

Stjarnan og Grindavík mættust í fyrsta leik beggja liða í Lengjubikarnum í kvöld. Leikið var í Kórnum.

Guðjón Baldvinsson kom Stjörnunni yfir á 32. mínútu en sú forysta entist ekki lengi því að Sigurjón Rúnarsson jafnaði fyrir Grindavík tæpum tveimur mínútum síðar.

Staðan því jöfn í hálfleik, 1-1. Hilmar Árni Halldórsson kom Stjörnunni yfir á 57. mínútu leiksins.

Fleiri urðu mörkin í leiknum ekki og sigur Sjörnumanna staðreynd. ÍA, Leiknir R., Magni, Þór eru í A-riðlinum með Grindavík og Stjörnunni.

Vladimir Tufegdzic spilaði sinn fyrsta leik í búningi Grindavíkur í kvöld en hann kom til liðsins frá Víking R. í gær.


Athugasemdir
banner
banner
banner