UEFA hefur staðfest að mínu þögn verði fyrir alla leiki vikunnar í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni til minningar um Emiliano Sala.
Sala fannst látinn í síðustu viku en flugvél með hann innanborðs hvarf þann 21. janúar síðastliðinn. Ennþá er verið að leita að David Ibbotson, flugmanni vélarinnar.
Sala fannst látinn í síðustu viku en flugvél með hann innanborðs hvarf þann 21. janúar síðastliðinn. Ennþá er verið að leita að David Ibbotson, flugmanni vélarinnar.
16-liða úrslit Meistaradeildarinnar hefjast klukkan 20:00 í kvöld með leikjum Manchester United og PSG sem og leik Roma og Porto.
32-liða úrslitin í Evrópudeildinni hefjast einnig í kvöld með leik Fenerbahce og Zenit St. Pétursborg en aðrir leikir í Evrópudeildinni eru á dagskrá á fimmtudag.
Athugasemdir