Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. apríl 2019 19:14
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp og Mane bestir - Búnir að jafna Mourinho og Hazard
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp var besti þjálfari ensku úrvalsdeildarinnar í mars og Sadio Mane besti leikmaðurinn. Liverpool gerði eitt jafntefli og vann þrjá í mars, meðal annars gegn Tottenham, og skoraði Mane þrjú mörk í leiðinni.

Þetta er í þriðja sinn sem Klopp hlýtur nafnbótina og í annað sinn hjá Mane og eru þeir félagarnir þannig búnir að jafna Jose Mourinho og Eden Hazard, sem hafa hlotið viðurkenningarnar jafn oft.

Mane er búinn að vera í stuði á tímabilinu og er kominn með 17 mörk í 31 deildarleik. Liverpool er einnig búið að vera í gífurlegu stuði undir stjórn Klopp og er að berjast við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn.

Hazard og Mourinho hafa samanlagt unnið úrvalsdeildina fimm sinnum, þó aðeins einu sinni sem samherjar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner