Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. apríl 2019 07:00
Arnar Helgi Magnússon
Sarri útskýrði allt fyrir Drinkwater
Mynd: Getty Images
Danny Drinkwater hefur ekki verið í náðinni hjá Maurizo Sarri, þjálfara Chelsea, á leiktíðinni en enski miðjumaðurinn hefur spilað einn leik á tímabilinu.

Það var tapleikurinn gegn Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í ágúst.

Maurizio Sarri segir að hann hafi talað við Drinkwater í byrjun tímabils og sagt honum að hann væri ekki í sínum plönum.

„Hann hentar ekki því sem við erum að gera. Ég talaði við hann og útskýrði stöðuna, hann ákvað samt að vera áfram," segir Sarri.

„Ég sagði við hann að það væri best fyrir hann að reyna að finna sér nýtt félag en hann vildi það ekki. Drinkwater er frábær manneskja og ég hef ekkert út á hann að setja."

Drinkwater var nú á dögunum ákærður grunaður um ölvunarkastur.
Athugasemdir
banner
banner
banner