Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 12. apríl 2019 09:34
Elvar Geir Magnússon
Solskjær: Aldrei glaður þegar maður vinnur ekki leiki
Solskjær var spurður út í rýra uppskeru að undanförnu.
Solskjær var spurður út í rýra uppskeru að undanförnu.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur verið að gefa eftir undir stjórn Ole Gunnar Solskjær og aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum.

„Þú ert aldrei ánægður þegar þú vinnur ekki leiki en þetta hefur verið kafli þar sem við höfum spilað við nokkur verulega góð lið. Við höfum átt góðar frammistöður en höfum ekki haft gæðin og trúna fyrir framan markið," segir Solskjær.

„Við hefðum átt að vinna Wolves og Arsenal miðað við tækifærin sem við fengum. Við höfum verið að æfa. Sem sóknarmaður veit ég hversu miklu máli skiptir að hafa trú. Stundum vantar aðeins upp á sjálfstraustið. Við þurfum að vera öflugri fyrir framan markið."

Staðan á hópnum
United, sem er í harðri baráttu um að enda í topp fjórum, mætir West Ham á morgun. Ander Herrera getur ekki spilað vegna meiðsla. Alexis Sanchez æfði í morgun en Solskjær segir ólíklegt að hann spili leikinn. Ashley Young og Luke Shaw verða í banni.

Sanchez hefur misst af sex leikjum vegna meiðsla en Antonio Valencia er einnig fjarverandi. Solskjær segir mögulegt að Nemanja Matic geti tekið þátt í leiknum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner