fös 12. apríl 2019 05:55
Arnar Helgi Magnússon
Þýskaland um helgina - Hvað gerir Augsburg með nýjan stjóra?
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen er með eins stigs forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar fyrir leiki helgarinnar. Umferðin hefst í kvöld með leik Nurnberg og Schalke 04.

Nurnberg er í sautjánda sæti deildarinnar á meðan Schalke er svo gott sem búið að bjarga sér frá falli. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á SportTV2

Á morgun eru fimm leikir á dagskrá, fjórir þeirra hefjast á sama tíma eða klukkan 13:30. Dortmund fær síðan Mainz í heimsókn seinni partinn. Með sigri kemst Dortmund aftur í toppsætið. Mainz situr í tólfta sæti deildarinnar og hefur að litlu að keppa.

Bayern Munchen á útileik gegn Fortuna Dusseldorf á sunnudag. Fortuna er í tíunda sætinu. Augsburg, lið Alfreðs Finnbogasonar, á erfiðan útileik gegn Eintracht Frankfurt í lokaleik þessarar umferðar.

Þjálfari Alfreðs var rekinn í vikunni og tók Svisslendingurinn Martin Schmidt við liðinu. Eintracht Frankurt er í fjórða sæti deildarinnar fyrir umferðina og mun að öllum líkindum vera þar eftir umferðina líka.

Föstudagur:
18:30 Nurnberg - Schalke 04 (SportTV2)

Laugardagur:
13:30 RB Leipzig - Wolfsburg (SportTV2)
13:30 Stuttgart - Leverkusen
13:30 Werder Bremen - Freiburg (SportTV2)
13:30 Hannover - Borussia M. (SportTV2)
16:30 Dortmund - Mainz (SportTV2)

Sunnudagur:
11:30 Hoffenheim - Hertha Berlin (SportTV2)
13:30 Fortuna Dusseldorf - Bayern Munchen(SportTV2)
16:00 Eintracht Frankfurt - Augsburg (SportTV2)
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner