Brighton 0 - 0 Everton
Brighton og Everton gerðu markalaust jafntefli á American Express-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Meiðsli höfðu mikil áhrif á Everton í kvöld en framherji þeirra, Dominic Calvert-Lewin var ekki í hópnum og vantaði hann til að fá mörkin í kvöld.
Tom Davies átti besta færi Everton í fyrri hálfleik en hann skallaði framhjá á 30. mínútu áður en Neil Maupay fékk fínasta færi fyrir Brighton en klikkaði.
Brighton-liðið reyndi eins og það gat að skora en boltinn vildi ekki inn.
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Everton á miðjunni í dag.
Jafntefli niðurstaðan. Brighton í 15. sæti með 33 stig en Everton í 8. sæti með 48 stig.
Athugasemdir