Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 12. apríl 2021 21:37
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Magnaður sigur Sevilla á Celta Vigo
Ivan Rakitic skoraði fyrir Sevilla
Ivan Rakitic skoraði fyrir Sevilla
Mynd: Getty Images
Celta 3 - 4 Sevilla
0-1 Jules Kounde ('7 )
1-1 Iago Aspas ('20 , víti)
2-1 Iago Aspas ('25 )
2-2 Fernando ('35 )
3-2 Brais Mendez ('43 )
3-3 Ivan Rakitic ('60 )
3-4 Papu Gomez ('76 )

Sevilla vann frábæran 4-3 sigur á Celta Vigo í spænsku deildinni í kvöld. Sevilla kom tvisvar til baka í leiknum.

Franski varnarmaðurinn Jules Kounde kom Sevilla yfir á 7. mínútu áður en Celta fékk víti þrettán mínútum síðar. Iago Aspas skoraði úr spyrnunni áður en hann kom Celta yfir fimm mínútum síðar.

Brasilíski miðjumaðurinn Fernando jafnaði fyrir Sevilla á 35. mínútu en Brais Mendez kom Celta aftur yfir áður en hálfleikurinn var úti.

Ivan Rakitic jafnaði fyrir Sevilla á 60. mínútu og Papu Gomez skoraði svo sigurmarkið fimmtán mínútum fyrir leikslok. Mikilvægur sigur Sevilla sem er nálægt því að tryggja Meistaradeildarsæti.

Liðið er í 4. sæti með 61 stig, fjórtán stigum á undan Real Sociedad þegar átta leikir eru eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner