12.04.24 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Leverkusen getur tryggt sinn fyrsta Þýskalandsmeistaratitil

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
29. umferð þýska deildartímabilsins hefst í dag þegar Augsburg og Union Berlin eigast við í áhugaverðum slag.
Augsburg er í harðri baráttu um síðasta Evrópusætið á meðan Union Berlin er sex stigum fyrir ofan fallsæti eftir að hafa verið í fallbaráttu allt tímabilið.
Á morgun mæta ríkjandi Þýskalandsmeistarar FC Bayern til leiks gegn fallbaráttuliði Köln en meistararnir eru búnir að tapa tveimur leikjum í röð og eiga í hættu á að missa annað sæti deildarinnar til Stuttgart.
RB Leipzig og Borussia Dortmund eru í mikilli baráttu um fjórða sæti deildarinnar og eru jöfn á stigum sem stendur. Leipzig tekur á móti Wolfsburg á morgun á meðan Dortmund heimsækir Borussia Mönchengladbach í hörku leikjum.
Stuttgart tekur á móti Eintracht Frankfurt í spennandi slag í lokaleik morgundagsins og svo eru tveir leikir á dagskrá á sunnudeginum, þar sem Bayer Leverkusen getur tryggt sinn fyrsta Þýskalandsmeistaratitil í sögunni með sigri gegn Werder Bremen. Liðið hefur fimm sinnum endað í öðru sæti deildarinnar en aldrei tekist að hampa titlinum. Þá hefur Leverkusen sex sinnum endað í þriðja sæti deildarinnar.
Leverkusen er búið að eiga magnað tímabil og er liðið enn taplaust í öllum keppnum. Lærisveinar Xabi Alonso eru með sextán stiga forystu á toppi deildarinnar sem stendur, þegar sex umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Leverkusen gæti einnig tryggt sér titilinn á morgun ef Bayern tapar óvænt á heimavelli gegn Köln.
Föstudagur:
18:30 Augsburg - Union Berlin
Laugardagur:
13:30 Bayern - Köln
13:30 RB Leipzig - Wolfsburg
13:30 Mainz - Hoffenheim
13:30 Gladbach - Dortmund
13:30 Bochum - Heidenheim
16:30 Stuttgart - Eintracht Frankfurt
Sunnudagur:
13:30 Darmstadt - Freiburg
15:30 Leverkusen - Werder Bremen

Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bayern | 8 | +19 | 18 |
| 2 | Dortmund | 8 | +8 | 18 |
| 3 | Freiburg | 8 | +8 | 16 |
| 4 | RB Leipzig | 8 | +11 | 15 |
| 5 | Werder | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Leverkusen | 8 | +2 | 13 |
| 7 | Elversberg | 8 | 0 | 13 |
| 8 | Frankfurt | 8 | -5 | 11 |
| 9 | Mainz | 8 | 0 | 10 |
| 10 | Augsburg | 8 | +3 | 9 |
| 11 | Stuttgart | 8 | -1 | 9 |
| 12 | Hoffenheim | 8 | -2 | 9 |
| 13 | Köln | 8 | -3 | 9 |
| 14 | Paderborn | 8 | -3 | 9 |
| 15 | Hamburger | 8 | -12 | 9 |
| 16 | Union Berlin | 8 | -12 | 7 |
| 17 | Schalke 04 | 8 | -5 | 6 |
| 18 | Gladbach | 8 | -11 | 4 |