mið 12. maí 2021 21:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Hefja vegferð sína í Íslandsmóti með 7-0 sigri
KH byrjar Íslandsmótið mjög vel.
KH byrjar Íslandsmótið mjög vel.
Mynd: KH
Í kvöld hófst 2. deild kvenna með tveimur leikjum. Kvennalið KH spilaði sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu og það er óhætt að segja að þær hafi bara byrjað nokkuð vel.

KH tók á móti Hamri frá Hveragerði í kvöld og voru KH-stelpur í miklu stuði á Hlíðarenda.

Katla Tryggvadóttir átti frábæran leik fyrir KH og skoraði fernu í leiknum sem endaði 7-0. KH byrjar því vegferð sína í Íslandsmótinu með því að skella sér á topp 2. deildar.

Fram byrjar einnig á sigri. Fram og Hamrarnir áttust við í mjög skemmtilegum leik í kvöld sem endaði með 4-3 sigri Framara. Fram lenti tvisvar undir en náði að landa sigrinum.

KH 7 - 0 Hamar
1-0 Katla Tryggvadóttir
2-0 Sigríður Theód. Guðmundsdóttir
3-0 Birta Ósk Sigurjónsdóttir
4-0 Kristín Anna Smári
5-0 Katla Tryggvadóttir
6-0 Katla Tryggvadóttir
7-0 Katla Tryggvadóttir

Fram 4 - 3 Hamrarnir
0-1 Hafrún Mist Guðmundsdóttir ('13)
1-1 Gianna Mattea Milaro ('16)
1-2 Hildur Jana Hilmarsdóttir ('50)
2-2 Ólöf Ragnarsdóttir ('67)
3-2 Ólöf Ragnarsdóttir ('81)
3-3 Krista Dís Kristinsdóttir ('86)
4-3 Margrét Selma Steingrímsdóttir ('90)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner