mið 12. maí 2021 22:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Breiðablik að kaupa Sölva Snæ frá Stjörnunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik er að kaupa Sölva Snæ Guðbjargarson frá Stjörnunni samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Sölvi var á dögunum valinn í æfingahóp fyrir U21 landsliðið og er af mörgum talinn mest spennandi leikmaður Stjörnunnar. Samningur hans við Stjörnuna átti að renna út eftir tímabilið og rataði það í fjölmiðla fyrir mót að Breiðablik hefði hafið viðræður við hann.

Minna en sex mánuðir eru í að samningur Sölva renni út og því máttu önnur félög ræða við hann. Stjarnan tók ekki vel í þetta uppátæki Breiðabliks og hætti við að spila æfingaleik gegn þeim fyrir mót.

Sölvi hefur fengið sárafáar mínútur í fyrstu tveimur leikjum Stjörnunnar í deildinni. Sagan segir að Rúnar Páll Sigmundsson hafi fengið skilaboð um að spila ekki Sölva á meðan staðan væri eins og hún var. Sölvi kom inn á sem varamaður gegn Leikni í fyrstu umferð og var stjórn Stjörnunnar víst ósátt með þá ákvörðun að Rúnar hafi sett Sölva inn á. Rúnar sagði starfi sínu lausu eftir leikinn gegn Leikni.

Breiðablik er að kaupa Sölva, Kópavogsfélagið ætlar ekki að bíða þangað til eftir tímabilið.

Sölvi verður tvítugur í sumar og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki árið 2018. Hann á að baki sautján landsleiki fyrir yngri landsliðin.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner