Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 12. maí 2021 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fernandinho að framlengja um eitt ár
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Fernandinho er að framlengja samning sinn við Englandsmeistara Manchester City um eitt ár.

Fabrizio Romano greinir frá því að samningsviðræður séu á lokastigi og Fernandinho muni því spila fyrir Man City út næstu leiktíð.

Fernandinho er 36 ára gamall og hefur spilað 347 leiki á átta árum hjá Man City. Hann er fyrirliði félagsins.

Fernandinho hefur unnið ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum með City og freistast þess að vinna Meistaradeildina í fyrsta sinn í ár.

Fernandinho er enn í góðu standi og er búinn að spila 33 leiki á tímabilinu.
Athugasemdir
banner