mið 12. maí 2021 21:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild kvenna: Fyrsti sigur Aftureldingar, FH og ÍA
FH náði í sinn fyrsta sigur á tímabilinu.
FH náði í sinn fyrsta sigur á tímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Úr leik ÍA og Gróttu í fyrstu umferð.
Úr leik ÍA og Gróttu í fyrstu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Það fóru fram þrír leikir í annarri umferð Lengjudeildar kvenna í kvöld.

FH og ÍA töpuðu í fyrstu umferð en þessi tvö lið eru núna búin að setja stig á töfluna. Þau unnu bæði í kvöld.

ÍA kom til baka gegn Augnabliki á Akranesi. Hin mjög svo efnilega Vigdís Lilja Kristjánsdóttir kom Augnabliki yfir í leiknum á fjórðu mínútu og var staðan 1-0 alveg fram á 71. mínútu. Þá jafnaði Erla Karitas Jóhannesdóttir.

Lila Björg Ólafsdóttir tryggði ÍA svo sigurinn í uppbótartíma og lokatölur 2-1 fyrir ÍA.

FH tapaði fyrir nágrönnum sínum í Haukum í fyrstu umferð en þær mættu til leiks gegn Gróttu í kvöld staðráðnar að ná í fyrsta sigurinn, og þeim tókst það.

Selma Dögg Björgvinsdóttir kom FH yfir og var staðan 1-0 í hálfleik. Hafnfirðingar komust í 3-0 í seinni hálfleik áður en Grótta minnkaði muninn. Grótta vann 2-1 sigur á ÍA í fyrstu umferð.

Þá vann Afturelding góðan útisigur á Víkingi, en það eru tvö lið sem gerðu jafntefli í leikjum sínum í fyrstu umferð. Afturelding klúðraði víti snemma leiks en það kom ekki að sök og lokatölur 1-3 fyrir Aftureldingu í Fossvoginum.

ÍA 2 - 1 Augnablik
0-1 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('4)
1-1 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('71)
2-1 Lilja Björg Ólafsdóttir ('93)

FH 3 - 1 Grótta
1-0 Selma Dögg Björgvinsdóttir
2-0 Brittney Lawrence
3-0 Elísa Lana Sigurjónsdóttir
3-1 Eydís Lilja Eysteinsdóttir

Víkingur R. 1 - 3 Afturelding
0-0 Jade Arianne Gentile ('4 , misnotað víti)
0-1 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir ('23 )
0-2 Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir ('46 )
1-2 Kristín Erna Sigurlásdóttir ('53 )
1-3 Taylor Lynne Bennett ('89 )
Rautt spjald: Brynhildur Vala Björnsdóttir, Víkingur R. ('89), Taylor Lynne Bennett, Afturelding ('90)
Lestu nánar um leikinn
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner