Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 12. maí 2021 09:30
Fótbolti.net
Myndir: Fámenn fagnaðarlæti fyrir utan Etihad
Mynd: EPA
Englandsmeistaratitill Manchester City varð tryggður í gær án þess að liðið spilaði leik. Sigur Leicester gegn Manchester United gerði það að verkum að ljóst er að titill City er gulltryggður.

Manchester City hefur verið langbesta liðið á tímabilinu og er afskaplega vel að titlinum komið.

Eftir að titillinn var kominn í hús þá fagnaði hópur stuðningsmanna Manchester City fyrir utan heimavöll liðsins, Etihad.

Fagnaðarlætin voru ekki fjölmenn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum en það fólk sem mætti lét það ekki skemma gleðina.
Athugasemdir
banner
banner
banner