þri 12. júní 2018 07:25
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
Birkir gefur unglingum með lítil fjárráð fótboltaskó
Icelandair
Birkir Bjarnason í viðtali.
Birkir Bjarnason í viðtali.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason hefur í mörg ár gefið unglingum hafa ekki mikil fjárráð fótboltaskó. Þetta kemur fram í viðtali sem birt er á Vísi.

Birkir er með frekar litla fætur, notar skó númer 39 eða 40.

„Ég fæ mörg skópör hjá Adidas og oft fæ ég senda vitlausa skóstærð og það er gott að geta gefið strákum og stelpum skó sem hafa kannski minni möguleika á að kaupa þá. Það er bara gott að geta gert það," segir Birkir sem veit ekki hvað hann hefur gefið mörg pör.

„Nei, ég veit það ekki. Ég kem yfirleitt með marga skó fyrir hvern leik og ég hef bara ekki töluna á því. Ég er búinn að gera þetta í nokkur ár og vonandi held ég því bara áfram."
Athugasemdir
banner
banner