Vallarstarfsmenn á fótboltaleikvangnum í Kabardinka voru í óða önn við að setja aftur upp skilti við völlinn þegar fjölmiðlamenn bar þar að garði í morgun.
Skiltin fuku í roki við völlinn í gær en það varð til þess að fjölmiðlamenn fengu ekki að vinna í sérstakri vinnuaðstöðu við völlinn enda gætu þeir séð alla æfinguna væru þeir á svæðinu.
Vanalegt er að fjölmiðlamenn fái bara að sjá fyrstu 15 mínútur æfinga liðsins en eftir það fara þeir fyrir aftan þessi skilti og sjá ekki út á völlinn.
Vallarstarfsmennirnir voru þó komnir með lausn á því að skiltin fjúki ekki aftur því þeir ristu göt á þau svo vindurinn komist í gegn. Engum sögum fer af því hvort einhver hafi nýtt sér götin sem gægjugöt en myndir af þessu má sjá með fréttinni.
Athugasemdir