Margt virðist benda til þess að Matthijs de Ligt, nítján ára miðvörður Ajax, muni ganga til liðs við PSG í sumar.
Mino Raiola, umboðsmaður de Ligt, lenti í París í dag og sást með mönnum á vegum PSG.
Mino Raiola, umboðsmaður de Ligt, lenti í París í dag og sást með mönnum á vegum PSG.
Verðmiðinn er talinn vera um 75 milljónir evra. De Ligt hefur í sumar verið orðaður við stærstu lið Evrópu. Barcelona hefur í vikunni reynt sitt besta til þess að fá hollenska miðvörðinn.
Raiola er hins vegar í París og það gæti þýtt að frönsku meistararnir njóti krafta de Ligt á komandi leiktíð. Talið er að de Ligt fái um 340 þúsund pund í vikulaun hjá PSG fari hann þangað.
Athugasemdir