Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 12. júní 2019 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Matic: United verður að vera tilbúið frá fyrsta degi undirbúningstímabilsins
Mynd: Getty Images
Manchester United endaði nýliðið tímabil ekki vil. Liðið spilaði illa síðustu mánuðina og gekk brösulega að ná í úrslit. Liðinu tókst ekki að ná í Meistaradeildarsæti og eru það mikil vonbrigði á Old Trafford.

Ole Gunnar Solskjær tók við félaginu á miðju tímabili og byrjaði frábærlega með liðið. Þegar leið á tók að halla undan fæti og liðið tapaði fimm af síðustu níu leikjum sínum í deildinni.

Nemanja Matic, miðjumaður Manchester United, var í dag í viðtali á Sky Sports. Þar sagði Matic að allir hjá félaginu séu ákveðnir í að gera betur.

Matic er á leiðinni inn í sitt þriðja tímabil á Old Trafford.

„Ég held við verðum að vera tilbúnir frá fyrsta degi. Við verðum að undirbúa okkur líkamlega og vera tilbúnir andlega fyrir tímabilið," sagði Matic í dag.

„Við verðum að vera jákvæðir. Við viljum vinna titla svo allir verða að vera tilbúnir frá fyrsta degi."
Athugasemdir
banner
banner