Stuðningsmenn Liverpool voru ekki bjartsýnir að ná meistaradeildar sæti á nýafstöðnu tímabili.
Einn stuðningsmaður að nafni Danny Eccles var svo svartsýnn að hann sagði við félaga sína fyrir leik Liverpool og Manchester United að ef Liverpool myndi ná meistaradeildar sæti myndi hann fá sér húðflúr af Nat Philips leikmanni Liverpool.
Hann segir að þegar Alisson skoraði gegn West Brom hafi hann fagnað en svo róast niður og áttað sig á því að hann sé að fara fá sér húðflúr af Philips.
Eccles fékk sér húðflúr af Philips vera skalla múrstein en Karl Thyer hannaði þessa mynd og Eccles fann hana og ákvað að hún yrði fyrir valinu. Thyer setti færslu á twitter og var ánægður með flúrið. Philips svaraði og sagði:
„Geggjað, ekkert nema virðing á mann sem stendur við orðin sín"
A guy on Instagram, used my Nat Phillips artwork of him heading a brick to get a tattoo. Truly honoured 😂🙌🏽 pic.twitter.com/Oom1L4mitL
— Karl (@KarlThyer) June 11, 2021
Athugasemdir