Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 12. júní 2021 16:01
Victor Pálsson
Noregur: Viðar Ari byrjaði í tapi gegn Molde - Brynjólfur lagði upp
Mynd: Sandefjord
Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði Sandefjord í dag sem spilaði við Molde í efstu deild Noregs.

Sandefjord hefur byrjað tímabilið nokkuð illa í Noregi var aðeins með þrjú stig eftir fyrstu fjóra leki sína fyrir leikinn.

Molde reyndist aðeins of stór biti fyrir Viðar og félaga sem töpuðu leiknum 3-1 á heimavelli.

Viðar spilaði 74 mínútur í leiknum en þjálfari Sandefjord gerði þrefalda breytingu þegar 16 mínútur voru eftir.

Brynjólfur Andersen Willumsson lagði þá upp mark fyrir lið Kristiansund sem vann Odd 2-0. Brynjólfur kom inná á 74. mínútu og skilaði sínu í sigrinum.

Kristiansund er á toppnum eftir sjö leiki og er með 15 stig eftir fyrstu sjö leikina.

Í Svíþjóð var Bjarni Mark Antonsson í byrjunarliði Brage sem heimsótti Landskrona heimsókn í B-deildinni.

Brage tapaði leiknum með tveimur mörkum gegn einu og er í næst neðsta sæti deildarinnar með níu stig eftir tíu umferðir.

Bjarni spilaði 82 mínútur en eina mark Brage kom á 98. mínútu í uppbótartíma.
Athugasemdir
banner
banner