Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. júlí 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Barcelona með annað tilboð í Willian
Willian fagnar marki.
Willian fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur lagt fram annað tilboð í Willian kantmann Chelsea. Sky Sports greinir frá þessu í dag.

Barcelona bauð 50 milljónir punda í Willian í síðustu viku og félagið hefur nú komið með nýtt og hærra tilboð.

Willian var ósáttur með Antonio Conte, stjóra Chelsea, á síðasta tímabili en líkurnar verða meiri á að hann verði áfram þegar Maurizio Sarri sest í stjórastólinn á næstu dögum.

Willian skoraði þrettán mörk í 55 leikjum með Chelsea á síðasta tímabili.

Samtals hefur hann skorað 44 mörk í 236 leikjum með Chelsea síðan hann kom til félagsins frá Anzhi Makhachkala í Rússlandi árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner