Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 12. júlí 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Óvíst hvort Yerri Mina fari til Everton
Mynd: Getty Images
Ekki er ljóst hvort Everton nái að kaupa kolumbíska varnarmanninn Yerri Mina frá Barcelona.

Mina sló í gegn með Kolumbíu á HM og hann hefur verið sterklega orðaður við Everton að undanförnu.

Fréttir hafa sagt að Everton ætli að kaupa hann á 17 milljónir punda en umboðsmaður Mina segir ekkert ljóst ennþá.

„Það er ekki rétt að Yerri hafi skrifað undir hjá Everton," sagði umboðsmaðurinn.

„Það hafa mörg félög áhuga á Yerri. Áður en við getum rætt það þá verðum við að vita hvað Barcelona ætlar að gera. Þegar við heyrum frá félaginu þá tökum við ákvörðun."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner