Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   fim 12. júlí 2018 22:31
Kristófer Jónsson
Rúnar Páll: Hefðum getað skorað fleiri
Rúnar Páll var ánægður með frammistöðu sinna manna
Rúnar Páll var ánægður með frammistöðu sinna manna
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum hæstánægður eftir 3-0 sigur sinna manna gegn Nömme Kalju frá Eistlandi í dag. Var þetta fyrri leikur liðanna í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar.

„Í fyrsta lagi er ég ánægður að skora þrjú mörk þótt að við gátum skorað fleiri. En við fengum ekki mark á okkur sem að er lykilatriði en við erum í ágætis málum fyrir útileikinn, þó að það sé bara hálfleikur." sagði Rúnar eftir leik.

Eins og áður segir unnu Stjörnumenn leikinn 3-0 og eru því búnir að koma sér í ákjósanlega stöðu fyrir seinni leikinn í Eistlandi. Rúnari lýst vel á það verkefni.

„Þeir spila svipað og þeir spiluðu í dag held ég. Þeir spila ekki á sínum heimavelli sem er gervigrasvöllur heldur á grasvelli sem að er vottaður af UEFA. Þeir hafa sína styrkleika sem að við verðum að varast en við sjáum að þeir hafa líka sína veikleika sem að við verðum að nýta." sagði Rúnar að lokum.

Nánar er rætt við Rúnar Pál í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner