Fotbolti.net
12.07.20 - 12:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

England: Úlfarnir bitu Guttana fast

Jimenez og Jota skoruðu í dag.

Jimenez og Jota skoruðu í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Wolves 3 - 0 Everton
1-0 Raul Jimenez ('45 , víti)
2-0 Leander Dendoncker ('46 )
3-0 Diogo Jota ('74 )
Úlfarnir eru komnir upp fyrir Sheffield United og upp í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 heimasigur á Everton.

Strákarnir frá Guttagarði mættu ofjörlum sínum í dag og kom fyrsta markið í uppbótartíma fyrri hálfleiks úr vítaspyrnu Raul Jimenez eftir að Lucas Digne felldi Daniel Podence inn á vítateig Everton.

Leander Dendoncker skoraði svo strax í upphafi seinni hálfleiks og varamaðurinn Diogo Jota innsiglaði 3-0 heimasigur. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.