Vestri 0 - 0 Huginn
Það var ekkert mark skorað á Torfnesvelli fyrir vestan þegar Vestri og Huginn áttust við í 2. deild karla í dag.
Leikurinn var að klárast núna fyrir stuttri stund.
Huginn hefði með sigri getað minnkað bilið í Magna, sem er í öðru sæti. Þeir hefði getað minnkað muninn í eitt stig. Eftir þennan leik í dag er munurinn þrjú stig og það er allt opið í þessu.
Möguleikar Vestra á að fara upp eru ekki góðir. Þeir eru um miðja deild með 20 stig. Vestri er nær fallsvæðinu heldur en baráttunni um að komast upp í Inkasso-deildina, þar sem ástríðan er mikil.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir